Um okkur

Kristjan Erling Jónsson tók við rekstri Vatnslausna árið 2026 með það að markmiði að viðhalda og auka þjónustu og leggja áherslu á þjálfun rekstraraðila og starfsmanna baðstaða á íslandi.

Stofnun og fyrstu ár

Vatnslausnir voru stofnaðar árið 2002 af Baldri Halldórssyni með það skýra markmið að bjóða atvinnugeiranum hágæða hreinlætislausnir. Upphaflega beindist starfsemin að seldum búnaði, efnum og þjálfun fyrir matvæla- og iðnaðarfyrirtæki, auk stofnana sem þurftu sérhæfða vatns- og hreinsiefna meðhöndlun.

Fókus á sundlaugar

Fljótlega færðist aukin áhersla yfir á sundlaugar og önnur vatnsmannvirki. Þar hóf Vatnslausnir að bjóða heildstæðar lausnir fyrir efnaskömmtun og –stýringu, meðal annars klór- og pH-kerfi. Þjónustan spannar nú alla virðiskeðjuna – frá sölu og hönnun til uppsetningar og reglubundins viðhalds – og fyrirtækið hefur komið fyrir búnaði í mörgum stærstu sundlaugum landsins.

Traust orðspor

Frá upphafi hefur Vatnslausnir byggt upp sterka sérfræðiþekkingu og áreiðanlega þjónustu, sem hefur skapað traust viðskiptasambönd og gott orðspor fyrir sérsniðnar vatns- og efnastýringarlausnir.

Sagan okkar Vatnslausna

Vatnslausnir voru stofnaðar árið 2002

  • Vatnslausnir voru stofnaðar árið 2002 af Baldri Halldórssyni
  • Fyrst áhersla á hreinlætislausnir fyrir atvinnugeirann
  • Fljótlega fluttist fókus yfir á sundlaugar og vatnsmannvirki

UM VATNSLAUSNIR

– HELSTU ATRIÐI

  • Stofnað 2002 af Baldri Halldórssyni með það að markmiði að bjóða þrifa og sótthreinsi lausnir fyrir iðnað og fyrirtæki.


  • Í dag, leiðandi fyrirtæki í lausnum fyrir sótthreinsi búnað fyrir almenningssundlaugar með nútímatæknilausnum og fyrirbyggjandi þjónustu.
  • Nýr eigandi 2026
    Kristján Erling Jónsson tók við rekstri Vatnslausna árið 2026 með það að meginmarkmiði að viðhalda og efla þjónustu fyrirtækisins. Jafnframt verður lögð aukin áhersla á fræðslu, þjálfun og miðlun þekkingar til rekstraraðila og starfsfólks baðstaða á Íslandi.

  • Norrænt samstarf. Með nánu samstarfi við Enviroprocess í Svíþjóð hafa Vatnslausnir aðgang sérhæfðu starfsfólki með áratuga reynslu  í hönnun, uppsetningu og þjónustu við sundlaugar við norrænar aðstæður 


  • Skuldbinding. Að tryggja öryggi, sjálfbæran og skilvirkan rekstur sundlauga um allt Ísland.

SAGA VATNSLAUSNIR

Vatnslausnir voru stofnaðar árið 2002 af Baldri Halldórssyni með það markmið að bjóða upp á hreinlætislausnir fyrir atvinnugeirann. Fyrst um sinn beindist starfsemin að því að selja tæki, búnað og efni fyrir matvæla- og verktakageirann, ásamt stofnunum og heimilum þar sem þörf var á sérhæfðri meðhöndlun vatns og hreinsiefna.

Fljótlega eftir stofnun fór fyrirtækið einnig að þjónusta sundlaugar og önnur vatnsmannvirki með lausnir sem fela í sér skömmtun og miðlun á efnum eins og klór og sýrustillingarefnum. Með tímanum jókst þessi þáttur í starfseminni verulega og varð sífellt stærri hluti af rekstrinum.

Vatnslausnir tóku að sér bæði sölu, uppsetningu og reglubundna þjónustu við búnað tengdan hreinsun og meðhöndlun vatns. Sérhæfð þjónusta við sundlaugar varð ein af meginstoðum fyrirtækisins, og í dag hefur það komið fyrir búnaði í fjölmörgum stærri sundlaugum landsins.

Frá upphafi hefur Vatnslausnir byggt starfsemi sína á sérfræðiþekkingu og traustri þjónustu. Með árunum hefur fyrirtækið vaxið og eflt þjónustuframboð sitt og er í dag þekkt fyrir áreiðanleika og sérsniðnar lausnir á sviði vatns- og efnastýringar.

Samstarf við EnviroProcess

Til að ná þessum markmiðum hefur Vatnslausnir gert samstarfssamning við norræna fyrirtækið EnviroProcess, leiðandi aðila í sund- og baðlaugariðnaði. Þessi samvinna veitir aðgang að nýjustu lausnum á heimsvísu, hvort sem um ræðir byggingu nýrra mannvirkja eða uppfærslur á eldri kerfum.