Vörur

Hafðu samband – við hjálpum þér að finna lausnina fyrir þína sundlaug eða heilsulind. Sjá nánari upplýsingar.

Vatnslausnir býður upp á lausnir fyrir sundlaugar.

Hafðu samband – við hjálpum þér að finna lausnina fyrir þína sundlaug eða heilsulind. Sjá nánari upplýsingar.

Klór og pH miðlunarbúðnaður

Við bjóðum uppá fullkominn búnað til að stýra klór og sýrustigi og öðru sem nauðsynlegt þykir að fylgjast með og stýra. Mikilvægt er að velja réttan búnað eftir stærð og gerð sundlaug mannvirkis. (nánar um miðlunarbúnað)​

01

Klórframleiðsla

Allt frá árinu 2009 höfum við selt og sett upp klórframleiðslukerfi í fjölda sundlauga um allt land. Margar lausnir eru í boði í ​ framleiðslu á klór en það kerfi sem hefur notið mestu vinsælda er Chlorinsitu 5. En það er kerfi byggir á fullkominni tækni sem ​gerir það að verkum að einungis þarf salt, rafmagn og vatn til að halda uppi réttu pH gildi og klórstigi. (nánar um klórframleiðslu)​

02

Skammtadælur

Við bjóðum uppá margar og stærðir af skammtadælum, fyrir klór, sýru eða felliefni eða hvað annað efni sem þarf flytja.

03

Jöfnunartankar – Vatnstankar

Vatnstankar eða jöfnunartankar eru hlutur sem oftast eru vanmetnir.​ Stærð þeirra er mikilvægt að reikna rétt út svo þeir geti sinnt sýnu hlutverki. Við finnum réttu lausnina og sérsmíðum tanka að réttri gerð.

04

Hringrásardælur

Hringrásardælur er einn mikilvægustu þáttum í rekstri sundlauga. Huga þarf að ýmsu við val á hringrásardælum. Meðal annars þarf að huga að nýtni, hávaðamengun og gæða til að tryggja langtíma rekstraöryggi.

05

Sandhreinsitæki

Sandhreinsitæki eru mikilvægur hluti af hreinsikerfum sundlaug. Við bjóðum sandhreinsitæki af öllum stærðum og gerðum í allar gerðir sundlauga. Mikilvægt er að leita ráðgjafar um rétt val á hreinsitækjum.

06

Mælitæki

Við bjóðum uppá öll mælitæki og búnað til að mæla baðvatn og samstilla kerfi. Einnig veitum við ráðgjöf og kennslu í notkun þeirra.

07

VÖRULISTI

Bæklingur-sundlaugarvörur

Við útvegum allar þær vörur sem eru í bæklingi Enviroprocess, sumt eigum við á lager en annað getum við sérpantað.

Vöruúrval okkar

Við bjóðum upp á hágæða búnað og sannaðar lausnir fyrir vatnsmeðhöndlun í almennings-sundlaugum, heilsulindum og öðrum stöðum sem þarfnast vatnsmeðhöndlunar. Með áratuga reynslu á Norðurlöndum afhendum við áreiðanleg kerfi sem uppfylla hæstu kröfur um nákvæmni, öryggi og skilvirkni. Vöruúrval okkar nær yfir allt frá mælingar- og stjórntækjum til síunarkerfa og vandlega valinna hreinsiefna – hannað til að tryggja hreina, örugga og orkusparandi vatnsmeðhöndlun.